Umhirða og viðhald
Í heyrnartólunum fer saman frábær hönnun og flókin tækni sem fara þarf gætilega með.
Eftirfarandi leiðbeiningar hjálpa til við að uppfylla skilmála ábyrgðarinnar og geta stuðlað
að betri endingu.
•
Geyma skal alla fylgihluti þar sem börn ná ekki til.
•
Halda skal heyrnartólunum þurrum. Úrkoma, raki og hvers kyns vökvar geta innihaldið
steinefni sem tæra rafrásirnar.
•
Ekki má nota heyrnartólin á rykugum og óhreinum stöðum né geyma þau þar. Færanlegu
hlutirnir í þeim geta skemmst.
•
Ekki má geyma heyrnartólin á heitum stað. Hátt hitastig getur dregið úr endingu
rafeindatækja, skemmt rafhlöður og undið eða brætt sum plastefni.
•
Ekki má geyma heyrnartólin á köldum stað. Þegar þau hitna (upp að eðlilegu hitastigi)
getur raki myndast innan í þeim og hann getur skemmt rafrásaspjöld.
•
Ekki skal reyna að opna heyrnartólin. Meðhöndlun viðvaninga gæti skemmt þau.
•
Heyrnartólunum má ekki henda, ekki má banka í þau eða hrista þau. Óvarleg meðferð
getur skemmt innri rafrásarspjöld.
•
Ekki má nota sterk efni, leysiefni til hreingerninga eða sterk hreinsiefni til þess að þrífa
heyrnartólin.
•
Ekki má mála heyrnartólin. Málningin getur fest hreyfanlega hluti og komið í veg fyrir að
þeir vinni rétt.
Ef þörf er á aðstoð skal leita til þjónustufyrirtækis á staðnum. Starfsfólk þar aðstoðar
notandann og sér um viðgerð ef þörf krefur.